Bólusetningar ferðamanna
Ferðabólusetningaráðgjöf er sinnt af hjúkrunarfræðingum. Hægt er að hafa samband símleiðis við móttöku heilsugæslunnar og óska eftir ferðabólusetningaráðgjöf. Hjúkrunarfræðingur sendir í kjölfarið spurningalista á mínum síðum á heilsuveru. Við gerð á bólusetningaáætlun er meðal annars tekið til skoðunar fyrri bólusetningar og tímalengd dvalar. Hjúkrunarfræðingur mun senda bólusetningaáætlun á heilsuveru.