Gjaldskrá

Heilbrigðisráðuneytið hefur með “Reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu”, sem gekk í gildi 1. janúar 2026, ákveðið eftirfarandi greiðslur þeirra fyrir þjónustu heilsugæslunnar.

Gjaldskrá fyrir sjúkratryggða

Koma á heilsugæslustöð til lækna, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga á dagvinnutíma, kl. 8:00 – 16:00,
almennt gjald 500 kr.

Koma á heilsugæslustöð til lækna, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga utan dagvinnutíma,
almennt gjald 3.100 kr.

Vitjun læknis á dagvinnutíma, kl. 8:00 – 16:00,
almennt gjald 3.400 kr.

Vitjun læknis utan dagvinnutíma,
almennt gjald 4.500 kr.

Börn undir 18 ára aldri, börn með umönnunarkort, lífeyrisþegum og þeir sem koma vegna mæðraverndar greiða ekki.

Rannsóknir og greiningar

Rannsókn með beiðni til rannsóknarstofu,

  • almennt gjald 3.716 kr.
  • aldraðir og öryrkjar 2.477 kr.

Krabbameinsleit,

  • almennt gjald 500 kr.
  • aldraðir og öryrkjar 0 kr.

Önnur þjónusta
Auk komugjalda skulu sjúkratryggðir 18 ára og eldri, aldraðir og öryrkjar greiða fyrir aðra þjónustu sem hér segir:
Þungunarpróf, 936 kr.
Streptokokkarannsóknir, 673 kr.
Lyfjaleit í þvagi, 936 kr.
CRP (C-reaktíft prótein), 1.227 kr.
HbA1c (glýkósýlerað hemóglóbín), 1.754 kr.
Berklapróf (Mantoux), kostnaðarverð/innkaupsverð. sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
Lykkja (T), 4.994 kr.
Hormónalykkja, kostnaðarverð/innkaupsverð. sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
Ofnæmispróf (prick húðpróf), kostnaðarverð/innkaupsverð. sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
Pokar vegna blóðaftöppunar, 1.519 kr.
Leigugjald fyrir afnot af blóðþrýstingsmæli í 24 stundir, 7.290 kr.

Námskeið

Fyrir námskeið á vegum heilsugæslustöðva
a. Heilsueflandi námskeið varðandi lífstíl og áhættuþætti heilsu, tengd sjúkdómum s.s. sykursýki, offitu og  geðheilbrigði og tengd ákveðnum æviskeiðum, s.s breytingaskeiði og öldrun. Skal greitt fyrir námskeið sem er eitt skipti samtals 5.377 kr., tvö til þrjú skipti samtals 10.754 kr., fjögur til sex skipti samtals 17.206 kr. og sjö til tíu skipti samtals 23.658 kr.

b. Námskeið vegna meðgönguverndar, fyrir foreldra og heilsuvernd barna er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Gjaldskrá fyrir ósjúkratryggða

Komur
Fyrir komu á heilsugæslustöð á dagvinnutíma, 13.951 kr.
Fyrir komu á heilsugæslustöð vegna mæðra- og ungbarnaverndar, 13.951 kr.
Fyrir komu á heilsugæslustöð utan dagvinnutíma,
þ.e. milli kl. 16:00 og 8:00 og á laugardögum og helgidögum, 20.648 kr.

Vitjanir
Fyrir vitjun læknis á heilsugæslustöð á dagvinnutíma, 29.576 kr.
Fyrir vitjun læknis á heilsugæslustöð utan dagvinnutíma, 36.690 kr.
Fyrir vitjun annarra en lækna á heilsugæslustöð, 15.066 kr.

Önnur þjónusta
Auk komugjalda skulu ósjúkratryggðir greiða fyrir aðra þjónustu sem hér segir:
Þungunarpróf 936 kr.
Streptokokkarannsóknir 673 kr.
CRP (C-reaktíft prótein) 1.227 kr.
HbA 1c (glýkosýlerað hemóglóbín) 1.754 kr.
Lyfjaleit í þvagi 936 kr.
Lykkja (t) 4.944 kr.
Hormónalykkja sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
Berklapróf – Mantoux (Tuberkulin) sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
Pokar vegna blóðaftöppunar, 1.519 kr.
Gjöld vegna krabbameinsleitar (legstroks og mynd af brjóstum) á heilsugæslustöð, greiðist til viðbótar við komugjald 13.951 kr.

Læknisvottorð

Vottorð vegna fjárhagslegrar aðstoðar við fötluð og sjúk börn, 0 kr.
Vottorð vegna endurhæfingarlífeyris, 0 kr.
Örorkuvottorð vegna lífeyristrygginga, 0 kr.
Örorkuvottorð vegna slysatrygginga, 0 kr.
Vottorð um fjarvistir nemenda úr skólum, 2.489 kr.
Framhaldsvottorð vegna slysatrygginga, 893 kr.
Áverkavottorð vegna slysatrygginga, 1.927 kr.
Læknisvottorð vegna beiðni um þjálfun, 1.927 kr.
Læknisvottorð vegna öflunar hjálpartækja, 1.927 kr.
Læknisvottorð vegna lengingar fæðingarorlofs, 1.927 kr.
Læknisvottorð vegna hreyfihömlunar (uppbót v. reksturs bifreiðar), 1.927 kr.
Læknisvottorð vegna heimahjúkrunar, 1.927 kr.
Læknisvottorð vegna vistunar sjúklings erlendis, 1.927 kr.
Læknisvottorð vegna umsóknar um lyfjaskírteini, 1.927 kr.
Vottorð vegna sjúkranudds, 1.927 kr.
Læknisvottorð vegna sjúkradagpeninga, 1.927 kr.
Læknisvottorð vegna ferðakostnaðar innanlands, 1.927 kr.
Læknisvottorð vegna umsóknar um styrk og uppbót til kaupa á bifreið fyrir fatlaða, 1.927 kr.
Vottorð vegna bóta úr slysa- og sjúkrasjóðum stéttarfélaga, án greinargerðar, 1.927 kr.
Vottorð um fjarvistir til atvinnurekenda, 2.489 kr.
Vottorð um heilsufar nemenda til skóla, leikskóla og sumarbúða, 2.489 kr.
Vottorð um ónæmisaðgerðir og alþjóðaónæmisskírteini, 2.489 kr.
Vottorð um undanþágu til bílbeltanotkunar, 2.489 kr.
Vottorð vegna dagmóðurstarfa, 2.489 kr.
Vottorð vegna endurgreiðslu ferðakostnaðar, s.s. ferðarofs og til skattayfirvalda, 2.489 kr.
Vottorð vegna veitingar ökuleyfis, 2.489 kr.
Vottorð um heilsufar einstaklinga til félagsþjónustunnar og annarra stofnunar, 2.489
Vottorð um heilsufar kjörforeldra, stuðningsforeldra og fósturforeldra, 2.489
Vottorð vegna fóstureyðinga og ófrjósemisaðgerða, skal miða við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða 6.469 kr. fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.
Vottorð vegna umsókna um örorkubætur til lífeyrissjóða skal miða við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða 6.469 kr. fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.
Vottorð um heilsufar eða vinnufærni vegna umhverfis eða atvinnu, þ.m.t. vegna atvinnuréttinda, (meiraprófs) 7.706 kr.
Vottorð vegna byssuleyfis, 7.706 kr.
Vottorð vegna skóla og sumarbúða erlendis, 7.706 kr.
Vottorð til lögmanna og tryggingarfélaga vegna sjúkdóma eða slysa skal miða við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða 5.849 kr. fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.
Vottorð til lögreglu og sýslumanna vegna dvalar- og/eða atvinnuleyfa hér á landi og dvalar eða starfa erlendis, skal miða við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða 5.849 kr. fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.
Vottorð vegna ættleiðinga, skal miða við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða 5.849 kr. fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.
Vottorð um niðurstöðu úr Covid sýnatökum, 8.072
Vottorð um starfshæfni og fyrir staðfestingu á heilsufari til Virk, 2.306